Ný Fartölva í Keilusiðunni
09. mars 2009 klukkan 14:23
Já, ég veit að flest öll bloggin mín byrja á því að minnast á það hvað það var langt síðan ég bloggaði seinast, ætla að sleppa því en ég verð samt að nefna það að ég held að ég geti ekki sagst vera mjög aktífur bloggari.
Sit hérna inni á bókasafninu í eyðu og er að skrifa þetta blogg á nýju fartölvuna hennar Jófríðar því hin gafst upp um daginn, það var allt orðið lélegt og leiðinlegt við hana. Hæg, slekkur á sér, skjárinn á sýrutrippi öðru hvoru, hátníðivæl úr rafeindabúnaðinum, ofhitnar, ónýtt batterí. Svo var hún auðvitað í þyngri kantinum líka.
Okkur langaði í makka, en þar sem þeir eru svo fjandi dýrir og á þvílíku okurverði núna, að mér blöskrar við því. ( Appleumboðið hikar ekki við að hækka ef gengismúsin hnerrar smá.) Þannig að við fengum okkur Dell tölvu, ein aðalástæðan var auðvitað að þeir í Dell vita stundum hvað þeir eru að gera og hanna ágætis tölvur. Þær eru flottar (en ekki "fallegar") og stílhreinar, þeir eru heldur ekki eitthvað drasl og endast yfirleitt vel, svo sakar heldur ekki að vera með þriggja ára ábyrgð.
Við vildum netta og létta tölvu, hæfilega meðfærilega til þess að fara með í skólann en ekki það lítil að maður þarf helst að vera með dvergaputta til að skrifa á lyklaborðið. (Dell Mini 9)
Við enduðum á að kaupa XPS M1330 fartölvu þó Dell Mini 12 líti ágætlega vel út eru Dell ekki að bjóða upp á nægilega góða hluti í hana eins og t.d. SSD, meira en 1 GB minni, og skjákort.
Þannig að M1330 var það sem komst nálægast því sem við vildum:

Specs (Fyrir nördana):
Skjár 13.3" Widescreen (1280*800)
Örgjörvi: T5800 @ 2.0 GHZ Core 2 Duo (2 Kjarnar)
Biðminni: 2.00 GB Minni (2x 1024MB )
Skjáhraðall: GeForce 8400M GS (128MB)
HDiskur: 150 GB
Þyngd: 2 Kg
(Eitt sem ég komst að er að örgjörfinn sem er í þessari tölvu hefði getað verið betri, við fengum þessa tölvu á ágætis verði miðað við kreppu. Ég er hinsvegar svekktur eins og maður verður alltaf að minnsti örgjörvinn sem hægt er að velja á dell.com er T6400. Svo er líka nýja XPS Studio 13 alveg helslick.)
Jæja, þarf að fara í heimspeki og læra um Nietzsche.

Kaffihús
18. júní 2008 klukkan 01:06
Var að jútjúbast, sá eitt myndband sem ég verð að hafa hérna:
Virðist nú ekki vera erfitt, ég er nú ekki mikið fyrir figúratívu myndirnar, en symmetrísku formin eru snilld.
Ps.
Núna langar mig á kaffihús, Karó helst.

Íbúð næsta haust!
28. apríl 2008 klukkan 23:24
Jæja, það lítur nú allt út fyrir að ég og Jófríður munum leigja íbúð næsta haust þegar við höldum okkar skólagöngu áfram hér á Akureyri. Íbúðin er 68 fm, 2 herbergi úje.
Svo núna þurfa allir að vera svakalega sniðugir (og góðir/og góðar) og gefa okkur einhverjar fínar nytsamlegar innflutnings gjafir þegar þar að kemur! Við erum auðvitað mjög þakklát fyrirfram! :D
Hérna eru hugmyndir:

Pottur!

Og sleif... osfr. :P

Panna!

Pottur!

Og sleif... osfr. :P

Auðvitað djókur, enginn þarf að gefa okkur neitt, en án myndanna væri bloggið svo stutt...
Og ef einhver endilega vill gefa okkur eitthvað nytsamlegt þá má hann það alveg. ~_^

Ekki selja internetið okkar!
05. mars 2008 klukkan 11:04
Í ameríku er mikil umræða um "net neutrality ", en málið snýst um það hvort fyrirtæki
geti stjórnað hvað fari í gengum netpípur þeirra, það er að segja...
Ef þeir fá sitt í gegn á bandaríska þinginu, þá munu þeir mismuna notendum á internetinu,
net neutrality eða "hlutleysi internetsins" þýðir að ef ég, notandi kaupi aðgang að netinu
með áhveðnum gæðum fyrir einhverja upphæð, og annar notandi kaupi aðgang með sömu
gæðum eða betri, þá eigum við notendurnir að geta haf samskipti í sama gæðaflokki.
Þetta vilja símafyrirtækin ekki, horfið á myndbandið.
Ps. Veit það er langt síðan síðasta blogg, bara ekkert mikið um að vera. Nema auðvitað ég er að fá í frænda í heiminn eftir nokkra daga, jibbí, get ekki beðið! :D

Skólinn er byrjaður
08. janúar 2008 klukkan 07:35

Jæja, í dag er fyrsti skóladagurinn minn á þessu ári. Hefði getað náð í stundatöfluna mína í gær en ég lenti í allskonar veseni svo ég gafst bara upp á endanum. Byrjaði á því að ég mætti upp í VMA, þar tók á mér löng, löng röð af fólki sem var að líka að ná í stundatöfluna sína, komst svo að því eftir um korter í röðinni að ég þarf að borga fyrir stundatöfluna og efnisgjöldin í leiðinni, þar er vandi á... sko ég var ekki með kortið mitt til að borga sem var læst uppi á herbergi á vistinni, og herbergiskortið mitt ákvað að virka ekki eftir jólafríið. Það reyndist ekki vera léttur leikur að ná af vaktmanni vistarinnar til að endurnýja kortið.Auk þess sem ég vissi ekki hversu mikið ég átti að borga í efnisgjöld sem maður btw verður að borga á sama tíma og maður fær stundatöfluna þetta árið. Þetta er kannski þægilegt en mér finnst þetta svolítið asnalegt að þurfa bíða í hálftíma eða meira bara til þess að fá að vita að maður er ekki með nóg pening og þarf svo að fara aftur í röðina til að fá borga fyrir stundaskránna og efnisgjöldin. Þetta væri fínt ef það stæði einhverstaðar að það þyrfti að borga efnisgjöldin á sama tíma, t.d. á heimasíðu skólans eða með stórum stöfum í anddyrinu þegar maður kemur inn.
Þannig að ég gafst bara upp í gær og ætla bara að gera þetta núna, snemma.
Pirraði-Sindri er farinn í skólann.
PS.
Mikið er gott að vera kominn aftur á vistina (<-- hah, hélt að ég myndi aldrei segja þetta!) til hennar Jófríðar! :D
Jólafríið að koma með sín bláu hár
27. nóvember 2007 klukkan 19:28
Ég hérna, hérna.... er að blogga, já það er alveg rétt. Búinn að vera eylítið upptekinn síðustu vikur, eða kannski á ég bara að kenna letinni um. Maður þarf alltént að hafa smá fyrir því að halda úti bloggsíðu.
Allavega... þá er ég búinn að vera á fullu í skólanum að reyna að klára þau verkefni sem ég er ekki búinn með. En ég þarf að skila nokkrum möppum í listgreinaáföngunum sem ég er í núna í VMA. Annars er ég bara að fíla það í botn að vera hérna í þessum skóla, hann hentar mér mun betur en MA.
Ég er búinn að vera að læra formfræði, litafræði, myndbyggingu, myndlistasögu og svo grunnreglur í fjarvídd og módelteikningu og gengur bara ofsa vel með það.

Í dag fór ég niður í bæ með Jófríði, m.a. til að setja greyið "Krúttið" mitt í viðgerð, fara í Hagkaup og kaupa súkkulaðijóladagatal en við hættum við það en ég held að það hafi verið vegna þess að Jófríður getur ekki beðið til 1. des til að opna fyrsta gluggann á dagatalinu, hvað þá nokkra í viðbót. ;)
Svo eftir þetta fórum við og þrifum bílinn hennar og verðlaunuðum okkur með því að fara bara á Bautann og fá okkur að borða, skruppum svo á Bláu könnuna til að kaupa okkur heitt súkkulaði og vera krúttleg.
Svo erum við bara krúttleg hérna upp í holunni okkar að blogga út í eylífðina og hlusta á tónlist... öMg. =]
En ég það sem skemmtilegast er að ég fann skemmtilega hljómsveit sem heitir Radicalfashion endilega kíktu.
"Jæja, þá er þessssi helgi búin..." - Hlynur, 101 Reykjavík
15. október 2007 klukkan 15:18
Þetta sagði ég upphátt rétt í þessu, þetta er nú ekki búin að vera tilkomumesta helgi sem ég hef upplifað hingað til, en þrátt fyrir það finnst mér þetta verðskulda blogg.
Hér er ég búin að húka, inní herbergi í þægilegum buxum og selskinnsinniskónum mínum (GAY?, allt fyrir þægilegheitina) annað hvort fyrir framan 17" tommu lcd-skjáinn, 15" túbuskjáinn, uppi í rúmmi eða í sturtunni. Allt þetta með sjálfum mér.
Málið er það að það er fínt að vera einn með sjálfum sér við og við, maður fær tækifæri til þess að eyða tíma sínum nákvæmlega eins og maður vill. Og í mínu tilviki, í ekki neitt sérstakelga merkilegt.
Þó læðist það oft aftan að manni þegar maður fer að sofa, og leggst í tvíbreitt rúm (tvö einbreið saman) með skal ég segja ykkur tvíbreiðri sæng, sérstaklega keypti fyrir mig og mína. Þá fer maður að sakna hennar og eyðir þá tímanum í eitthvað sem maður vildi helst ekki eyða honum í. Að sakna hennar.

Jæja, letz get zhis zhing ztarted!
14. október 2007 klukkan 04:46
Hvað gerir maður einn í fjögura daga fríi? Vakir, eða sefur, thats what you do!
Annars ákvað ég að reyna að taka smá törn hérna á þessu bloggi mínu. Alas, nýtt útlit, breyttir tenglar, breyttar áherslur.
Fylgist með á næstu dögum, heh.
Blessó veriði hressó. (Euggh!, en hvað þetta var cheesy...)
Ps.
Jófríður ég sakna þín. (Já ég veit að hún er ekki búin að vera burtu í nema tvo daga en mér er alveg sama hvað öðrum finnst ég má vera leim og kjánalegur ef ég vill og hananú.
Ps2. Hvernig finnst ykkur/þér nýji bannerinn?

Rhodos... jeijj
04. september 2007 klukkan 21:03
Jæja núna er Sindri úti á Rhodos (Ródos) að skemmta sér, ég fór út 1. sept og kem heim 15. sept, æ þínk. Er á ágætlega flottum strand-bar/café/pizzeria hérna niðri við ströndina sem heitir því fáránlega nafni "Patty's", eina ástæðan fyrir því að ég er hérna er hinsvegar sú að netkaffið hérna er töluvert ódýrara en það sem boðið er upp á hótelinu. Á hótelinu kostar rúmar þrjár evrur að vera á netinu í hálftíma, en um daginn var ég hérna og borgaði bara eina evru fyrir 20 mín. Svo getur maður líka fengið sér "Frappuchino" (ískaffi) á meðan sem er plús, mjög gott að drekka þegar það er +30 celcíus og það er frekar mikill raki í loftinu, ég meina... hérna þá...
...SVITNAR maður DAG SEM NÓTT, því jafnvel um nóttina er mjög heitt +20° og auðvitað nóg af rakanum að fá. ("Special offer!, free humidity for you my friend!"
Er reyndar að verða svolítið þreyttur á þessari ferðamannagildru, jább gildru, í hvaða átt sem er frá hótelinu sem þú labbar eru bara endalausir veitingastaðir, svo kölluð "super markets", og rusl-búðir sem selja eftirlíkingar af dýrum merkja fötum og sólgleraugum. Svo er hægt að fá sér svona krúttlegann stuttermabol með áprentuðu tískumerki/logo að eigin vali, víjj. :S
Ég lenti hinsvegar á helvíti skemmtilegum pizzustað skammt frá hótelinu, þar var svona opinn veitinga staður bara upp í götunni, sem hét einfaldlega "Pasta Pizza".
Þar var svona stór kúlulaga pizzuofn með opnum viðareldi, og við hann stóð sveittur miðaldra sköllóttur Ítali með einar loðnustu handleggi sem ég hef séð að hnoða deig, ég leit á verðið... 4.9 € fyrir pítsu, sem er tjah? 430-450 kr, sem er bara mjög gott verð fyrir 12-13 tommu pítsu, og ákvað að skella mér á eina, það liðu bara 10 mín. þangað til pítsan var kominn á borðið þar sem ég sat. Áður en ég snerti pizzuna hugsaði ég mig um, því mér sýndist hreinlætið þarna ekki vera mjög mikið, en þá hugsaði heilinn minn... "Æ, fuck it. Hver deyr úr pizzueitrun í útskriftarferð á Grikklandi?"... Það væri nú the end of all útskriftarferðir, og viti menn, Pítsan var bara merkilega góð, gef henni alveg 8 af 10 mögulegum... eh, pítsuslæsum.
En já hérna byrjar bloggið, því ég veit að það er bara fólkið sem elskar mig mest sem les allt bloggið nema auðvitað Jófríður mín, hún þarf ekkert að lesa þetta allt ef hún nennir því ekki bara til þess að hafa það á samviskunni að hún elskar mig mest, því ég veit nú þegar að hún elskar mig mest. :P
Hérna eru allir búnir að vera á kúpunni "from day one" sérstaklega Herra. BA semsagt glaumgosinn í EXXINU, herra Björn Atli sem drapst í flugvélinni og einhver var svo góður að keyra honum í hjólastól frá flugvélinni og um flugvöllinn. H
erra Pálmi fór líka heldur geyst fyrsta daginn og var í því á fullu að fæða lítil græn og gul börn með munninum, og svitnaði líka mikið við þessi miklu afrek en hann bjargaði sér með því að drekka umþ 16 lítra (*ágiskun) af vatni og hresstist heldur upp við það.
Sindri R fékk loksins að drekka líter af bjór úr glerstígvéli, en það var ekki neitt í miðað við það sem gerðist þegar barþjónninn sagði að hann ætti líka tveggja lítra stígvél, og auðvitað drakk nafni minn þetta allt á innan við 20 mínútum svona til að standa undir nafni ("Sindri", fokk je!).
Ónefndir herbergisfélagar hérna úti á Ródos fóru á strippbúllu og eyddu einhverjum smápeningum í einkadansa og drykki handa kvensunum sem mér heyrist að "litu bara ágætlega út" en allt kom fyrir ekki að þegar boðið var upp á drátt gegn gjaldi þá hafði gengið aðeins of hart að peninga "hrúgurnar" í vösum herbergisfélagana, svo ekkert varð af og sagan, tja held ég skemmtilegri fyrir vikið.
Svo er auðvitað þetta klassíska dæmi um ljóshærðu íslensku stelpurnar sem fá mikla athygli hérna úti á Rhodos sökum hárlits, en þær halda víst að þær fái ekki nóg af henni þegar þær eru búnar að fá sér í tána, og hafa það fyrir venju að labba uppi á barborðum og tala hátt og snjallt um hvað þær eru dásamlegar við aumingja barþjónana.
Jæja, ég held að venjuleg manneskja endist ekki í að lesa lengra blogg en þetta svo ég kveð þig bara, kæri blogglesandi.
Blessbless! (Þarf að finna út hvað er bless á grísku fyrir næsta blogg.)
P.s.
Frikki er alltaf að segja mér frá hvernig hægðirnar hans eru, hann er sko mjög mikið að pæla í þeim. Því þú veist sko að bakteríuflóran er öllt önnur hérna á Ródos.

Sumar
16. júní 2007 klukkan 12:04
Ha? Er komið sumar? Hvernig komst það fram hjá mér?
Nújæja... ég er hættur í MA því mér leiddist svo mikið og ákvað að fara í VMA á listnámsbraut og gá hvernig ég fíli það.
Allavega núna er helgi og ég og Jófríður erum bara hérna að slappa af í herberginu mínu, í gærkvöldi var bara pantaður röggi spes+tómat því við nenntum ekki að elda, og svo í kvöld ætlum við að borða lambaprime, en ég gleymdi víst að setja það aftur í ískápinn... ætli það sé ekki orðið vel þiðið núna. Jæja, þetta reddast.
En núna er Jófríður svo sæt þarna sem hún liggur í rúmminu og sefur að ég þarf að leggjast hjá henni og loka augunum líka. Við ætluðum reyndar að fara í freyðibað í dag :P en það var ekki til tappi í baðið, svo það verður að bíða. Kannski getum við farið og keypt tappa í dag, hver veit.:)
En allavega, ég segi bara allt fínt fyrir þá sem lesa þetta. Ætlum í "nammiland" á eftir... þeas, örruglega Shell eða N1, því það er það eina sem kemst nálægt því að vera eins nammilandið í Hagkaup á Akureyri.
Bæjó. :]